S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

6
7
8
10
11

13
14
15
17

20
21
22
24

27
28
29
1
2

6
8

Nepal hugbúnaður ehf
Forsíða     Veftré     Hafa samband     Innskráning

Flokkaskipulag innan

Björgunarfélags Akraness

 

 

 

LANDFLOKKUR

Landflokkur sér um björgunarstörf á landi. Innan hans starfa nokkrir hópar, hver með sína sérhæfingu.

 

Rústabjörgunarhópur:

Sérhæfir sig í björgun úr rústum.

 

Fyrstuhjálparhópur:

Fyrstuhjálparhópur sérhæfir sig í að veita fyrstuhjálp. Þar eru æfð viðbrögð við slysum í óbyggðum, greining og forgangsröðun sjúkra í hópslysum o.fl.

 

Leitarhópur:

Sérhæfir sig í leit á landi. Hér er áhersla lögð á að læra og æfa leitartækni og kunna skil á því hvaða aðferðir virka best í mismunandi landslagi o.s.frv.

 

Undanfarahópur:

Hlutverk undanfara er að vera fyrstir á vettvang. Þeir fara fyrstir af stað með allra nauðsynlegasta búnað. Þeirra hlutverk er að veita neyðarhjálp og undirbúa björgun á vettvangi á meðan aðrir taka til nauðsynlegan búnað og koma honum á staðinn.


SJÓFLOKKUR

Sjóflokkur sér um björgunarstörf á sjó og vötnum. Skiptist hann í bátahóp og köfunarhóp.

 

Kafarahópur:

Sérhæfir sig í björgunarköfun

 

Bátahópur:

Sér um báta félagsins og æfir björgun úr vatni

 

TÆKJAFLOKKUR

Tækjaflokkur skiptist í tvo hópa, bílaflokk og beltaflokk.

 

Bílahópur:

Bílahópur sér um rekstur og akstur bíla sveitarinnar. Sveitin á fjóra bíla: Einn Excursion, eina Toyotu Tundru, einn Econoline og svo bryndreka af Thyssen gerð.

 

Beltahópur:

Beltahópur sér um snjóbíl sveitarinnar.

 

Björgunarfélag Akraness - Kalmannsvöllum 2 - 300 Akranes - sími: 430-4500 - GSM: 898-2489 - fax: 430-4501 - ba@bjorgunarfelag.is